Verkefnið Peatland LIFEline efndi til hönnunarsamkeppni á dögunum til að finna lógó sem fangar anda íslensks votlendis – endurheimt og tengingu við náttúruna. Samkeppnin var opin nemendum í hönnun og byggði á frumlegum hugmyndum sem sprottnar voru upp úr 24 uppástungum sem börn og unglingar teiknuðu á Vísindavöku 2025. Hver þátttakandi gat sent inn tvær tillögur með stuttri röksemdafærslu.
Dómnefnd mat innsendar tillögur samkvæmt matskvarða sem byggði á tengslum við verkefnið, frumleika, einfaldleika og skýrleika, litanotkun og tengingu við barnateikningu. Allir nemendur í hönnun voru hvattir til að taka þátt.
„Lýsir kjarna verkefnisins einstaklega vel“
Gunnar Karl Thoroddsen, nemi í Listaháskóla Íslands (LHÍ), bar sigur úr býtum eftir vandlega íhugun dómnefndar. Verðlaunaafhending var haldin á skrifstofu Fuglaverndar í gær, miðvikudaginn 17. desember, við notalega athöfn. Ásamt Gunnari hlaut Marey Ólafía Kristinsdóttir, 6 ára, viðurkenningu fyrir skemmtilega teikningu sem var innblástur vinningsmerkisins.

Dómnefnd skipuðu Eggert Pétursson myndlistarmaður, Nick Folkard fulltrúi bresku fuglaverndarsamtakanna RSPB og Fífa Jónsdóttir formaður dómnefndar og sérfræðingur í vísindamiðlun hjá Landi og skógi. Átta frábærar tillögur bárust dómnefnd frá fimm nemendum LHÍ.
Í umsögn dómnefndar segir að þau hafi verið sammála um að hönnunin hefði gripið anda verkefnisins á lofti og túlkað hann á einfaldan og skiljanlegan hátt. „Merkið er einfölduð mynd af jaðrakan í vatni sem lýsir kjarna verkefnisins einstaklega vel. Dómnefndin hreifst strax af tillögu Gunnars enda var hún heildstæð og vel út hugsuð frá upphafi. Grafísk túlkun fuglsins er einföld en hefur þægilega dýpt. Samkvæmt lýsingu keppninnar þá tók hann sér teikningu barns til fyrirmyndar og það var mynd Mareyjar Ólafíu Kristinsdóttur (8 ára) sem veitti honum innblástur. Val þeirra beggja á myndmáli sýnir sterka tengingu við íslenska náttúru og segir allt sem segja þarf um markmið verkefnisins. Litanotkun og letur fóru vel saman við það myndræna og auðvelt verður að nýta merkið til þess að kynna verkefnið hér á landi og erlendis næstu fimm árin.“
Myndir: Bára Huld Beck
