Vinningshafar skoða fugla
11.06.2026
Mynd sem tengist textanum

Tveir af þremur vinningshöfum í lógó- og slagorðasamkeppni Mýralífs, þau Christian Schultze og Marey Ólafía Kristinsdóttir, fóru í fuglaskoðun í Friðlandi í Flóa með Fuglavernd síðastliðinn þriðjudag.

Nærri 20 manns á öllum aldri mættu í fuglaskoðunina. Leiðsögumaðurinn að þessu sinni var Gunnlaugur Þráinsson, viðskiptafræðingur, fuglaskoðari og félagi í Fuglavernd.

Ungir sem aldnir sáu 17 tegundir í Friðlandinu sjálfu: álft, stokkönd, skúfönd, æðarfugl, toppönd, spóa, hrossagauk, óðinshana, stelk, lóuþræl, hettumáf, svartbak, sílamáf, kríu, lóm, hrafn og þúfutittling. Jaðrakan og tjaldur spókuðu sig einnig um rétt hjá veginum á leiðinni í Friðlandið.

Lómurinn vakti skiljanlega athygli þar sem mikið var um hann á tjörnum landsins en hann er einmitt einkennisfugl svæðisins.

Tjarnir og pollar víða

Stærð friðlandsins er um 5 km2, það er um 1–1,5 km á breidd og telst ásamt Ölfusforum til ósasvæðis Ölfusár sem er alþjóðlega mikilvægt fuglasvæði. Landið er lágt og meðalhæð yfir sjávarmáli aðeins um 2 m.

Í flóðum í Ölfusá liggur vatn yfir því öllu og aðeins hólarnir í Stakkholti, þar sem skoðunarhúsið stendur, standa upp úr. Á stórstreymi gætir sjávarfalla í Friðlandinu. Flóinn stendur á hinu mikla Þjórsárhrauni sem rann fyrir um 8.700 árum. Það myndaðist í gosi á Veiðivatnasvæðinu og er mesta hraun sem runnið hefur á jörðinni eftir ísöld.

Yfirborð Friðlandsins er þakið litlum pyttum og tjörnum. Lægðir í hinu forna hrauni eru vatnsfylltar vegna hárrar grunnvatnsstöðu og skýrir það myndun tjarnanna. Í Flóanum nefnast þessar tjarnir eða pollar Dælir. Þær dreifast um allt hraunið og skipta þúsundum. Dælirnar eru frá því að vera um 4 m í þvermál upp í nokkra tugi metra og eru flestar grunnar.

Votlendisfuglar einkenna svæðið

Um 70 fuglategundir hafa sést í Friðlandinu en nærri 25 tegundir verpa þar að staðaldri. Votlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalífið er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma.

Af andfuglum verpur álft, grágæs, stokkönd, rauðhöfðaönd, urtönd, duggönd, skúfönd og toppönd. Grafönd er líklega árviss og gargendur og skeiðendur hafa sést á varptíma en þær endur eru allar sjaldgæfar hér á landi. Lómur verpur víða við tjarnir og skipta pörin tugum og telst hann einkennisfugl Friðlandsins en lómavarp óx til muna við endurheimt votlendis í Friðlandinu.

Töluvert æðavarp er í Kaldaðarneseyjum í Ölfusi, undan Flógaflsengjum og nokkrar kollur verpa í sjálfu Friðlandinu. Hettumáfur er óreglulegur. Fáein kjóa-, sílamáfs- og svartbakshjón verpa. Kríur sækja þangað í ætisleit. Brandugla er líklega árviss varpfugl, þótt hreiður finnist ekki á hverju ári. Oft má sjá uglurnar á sveimi í kvöldhúminu í ætisleit, sérstaklega meðan þær eru að fóðra unga sína.

Mófuglar setja mikinn svip á votlendið. Þær tegundir sem verpa í mýrunum eru lóuþræll, spói, jaðrakan, hrossagaukur, óðinshani og þúfutittlingur. Þéttleiki lóuþræls og óðinshana er óvenjumikill. Heiðlóa og tjaldur verpa á þurrum stöðum. Á fartíma, vor og haust, ber mest á grágæs og blesgæs, öndum eins og rauðhöfða og skúfönd, ýmsum vaðfuglum eins og hrossagauki, svo og steindepli. Á veturna ber mest á fuglum á Ölfusárósi, aðallega máfum en stundum sjást hávellur og æðarfuglar. Þegar vatn er opið í Friðlandinu sjást álftir, urtendur, stokkendur og gulendur.

Fjölbreyttur gróður

Yfir 70 háplöntur hafa fundist í Friðlandinu. Í mýrunum vex fjölbreyttur votlendisgróður. Flæðiengjarnar eru vaxnar þroskamikilli gulstör en í þurrara landi er loðvíðir, gulvíðir, mýrastör og klófífa ríkjandi ásamt ýmsum grastegundum. Gulstörin var slegin alveg fram undir 1970 og áttu margir bæir í Eyrarbakkahreppi slægjurétt á engjunum.

Flestar tjarnir eru bryddaðar ljósastör og þar vaxa nykrur, reiðingsgras, mari og fleiri tjarnaplöntur. Í fallegum mógröfunum við Flóagaflsbæina vaxa brúsakollur, lónasóley og vorbrúða. Á suðurhluta Friðlandsins, við Óseyrarnes, ber meira á þurrlendis- og hálfdeigjuplöntum. Þar er geithvönn áberandi, en þar vex líka til að mynda hrossanál, baunagras, hrafnaklukka og túnvingull.

Tvær fallegar en sjaldgæfar blómaplöntur eru algengar í Friðlandinu. Önnur þeirra, stúfa, vex hér og þar um allt Friðlandið og einnig í mýrlendinu. Hún er annars aðeins algeng í Mýrdal og undir Eyjafjöllum og vex þar aðallega í grasbrekkum mót suðri. Hin er sjöstjarna sem er þar útbreidd. Þetta er þriðji fundarstaður hennar utan Austurlands, þar sem hún vex víða í skóglendi. Grástör og skriðstör eru fremur óalgengar starir sem vaxa innan um gulstörina.

Mynd: Bára Huld Beck

lógó

Meðfjármagnað af Evrópusambandinu. Skoðanir og álit sem hér koma fram eru þó eingöngu á ábyrgð höfundar/höfunda og endurspegla ekki endilega skoðanir Evrópusambandsins eða CINEA. Hvorki Evrópusambandið né styrkveitandi getur borið ábyrgð á þeim. Enska: Co-funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or CINEA. Neither the European Union nor the granting authority can be held responsible for them.

lógó: lífið