Mynd sem tengist textanum

Um verkefnið

Mynd sem tengist textanum

Mýralíf (Peatland LIFEline) er umfangsmikið verkefni sem miðar að endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Verkefnið er samstarf sjö stofnana og félagasamtaka: Landbúnaðarháskóla Íslands, Lands og skógar, Náttúrufræðistofnunar, Fuglaverndar, Náttúruverndarstofnunar, Hafrannsóknastofnunar og bresku fuglaverndarsamtakanna RSPB. Verkefnið er að mestu fjármagnað af LIFE-sjóðnum, sem er hluti af umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins. Verkefnið hófst formlega 1. september 2025 og stendur til loka febrúar 2031, eða í 66 mánuði.

Votlendi á Íslandi hefur um margt sérstöðu miðað við votlendi annars staðar í Evrópu, meðal annars vegna eldvirkni en þættir eins og ungur berggrunnur, áfok og eldgos hafa áhrif á eðli og eiginleika þeirra. Þéttleiki fugla er mikill og stofnar nokkurra tegunda fugla byggja afkomu sína að verulegu leyti á þessum svæðum. 

Mynd sem tengist textanum

Markmið verkefnisins er að auka þekkingu og skilning á votlendi á láglendi á Íslandi, vistfræði þess, líffræðilegri fjölbreytni og búskap gróðurhúsalofttegunda. Áhersla er lögð á vistgerðina starungsmýravist sem hefur mjög hátt verndargildi og fuglategundirnar jaðrakan, lóuþræl og stelk. Einnig verður sjónum beint að evrópska álnum sem er í útrýmingarhættu. 

Þess er vænst að verkefnið muni styrkja yfirsýn og auka þekkingu á votlendissvæðum landsins, ástandi þeirra og helstu áskorunum við endurheimt. Auk þessa er mikil áhersla lögð á samfélagslega þátttöku og miðlun þekkingar.

lógó