„Iceland wants to turn CO₂ into stone to save the planet | Carbon Hunters“ – Energy Observer, published 28/07/2026.
„Iceland wants to turn CO₂ into stone to save the planet | Carbon Hunters“ – Energy Observer, published 28/07/2026.
Skipverjar Energy Observer skoða endurheimtarsvæðið við Miðfossa
13.08.2026

Mýralíf tók á móti Victorien Erussard og Juliette de la Salle frá Energy Observer þegar þau dvöldu á Íslandi í júlí síðastliðnum. Energy Observer er fyrsta skip sögunnar sem er alfarið knúið af endurnýjanlegri orku og vetni sem framleitt er um borð.

Tökuliðið skoðaði svæðið við Miðfossa þar sem endurheimt votlendis var útskýrð, ásamt þeim áskorunum sem tengjast losun kolefnis og minnkun hennar með endurheimt votlendis á Íslandi.

Markmiðið að draga úr losun um 143.000 tonn af CO2-ígildum á ári

Í votlendi er ein öflugasta kolefnisbinding jarðar en það er jafnframt eitt af þeim vistkerfum sem hafa orðið fyrir mestri röskun. Talið er að framræst votlendi á Íslandi losi 23 tonn af CO2-ígildum á hvern hektara, sem er stór hluti af árlegri losun CO2 á landinu. Með því að endurheimta votlendi er hægt að minnka losunina niður í 3,4 tonn af CO2-ígildum á hvern hektara.

Markmið Mýralífs er að draga úr losun um 143.000 tonn af CO2-ígildum á ári eftir endurheimt á þeim svæðum sem um ræðir í verkefninu. Mýralíf tekur því fullan þátt, ásamt öðrum verkefnum um endurheimt votlendis, í markmiðum Íslands um kolefnishlutleysi fyrir árið 2040, auk þess að styðja við meginmarkmið Græna sáttmála Evrópu um að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 55% fyrir árið 2030.

Elisabeth Bernard, project coordinator, shows the Miðfossar area to the Energy Observer team. Source: „Iceland wants to turn CO₂ into stone to save the planet | Carbon Hunters“ – Energy Observer, published 28/07/2026.
Elisabeth Bernard, project coordinator, shows the Miðfossar area to the Energy Observer team. Source: „Iceland wants to turn CO₂ into stone to save the planet | Carbon Hunters“ – Energy Observer, published 28/07/2026.

Tökulið Energy Observer hitti jafnframt starfsfólk Lands og skógar sem er mikilvægur samstarfsaðili Mýralífs. Land og skógur stýrir framkvæmd verkefna sem miða að því að draga úr losun kolefnis og binda það á Íslandi með endurheimt votlendis, skógrækt og landgræðslu. Stofnunin sér einkum um sjálfa endurheimtina á svæðum Mýralífs, auk þess að fylgjast með losun lofttegunda fyrir og eftir endurheimt.

Tökuliðið hitti einnig fulltrúa Climeworks og Carbfix þar sem gerðar eru tilraunir með að fanga CO2 beint úr andrúmsloftinu og breyta því í stein með því að dæla því niður í basaltjarðlög.

Innslagið um Mýralíf var hluti af þáttaröð þeirra „Carbon Hunters“ og hægt er að horfa á það hér með enskum texta. Annað myndband um endurnýjanlega orku og kolefnislosun á Íslandi má finna í þáttaröð þeirra „DecarboNations“.

lógó

Meðfjármagnað af Evrópusambandinu. Skoðanir og álit sem hér koma fram eru þó eingöngu á ábyrgð höfundar/höfunda og endurspegla ekki endilega skoðanir Evrópusambandsins eða CINEA. Hvorki Evrópusambandið né styrkveitandi getur borið ábyrgð á þeim.

lógó: lífið