
Mýralíf hélt úti bás, ásamt Náttúrufræðistofnun og Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ), á Vísindavöku sem haldin var um liðna helgi. Margt var um manninn en vakan er nokkurs konar uppskeruhátíð vísindanna á Íslandi, þar sem gestir kynna sér vísindin á lifandi hátt og eiga í beinu samtali við rannsakendur og vísindafólk frá háskólum, stofnunum og fyrirtækjum í íslensku vísindasamfélagi.
Á Vísindavöku er hægt að prófa ýmis tæki og tól sem vísindafólk vinnur með í sínu daglega starfi og einnig verða fjölmörg tækifæri til að prófa sjálf hvernig vísindi og nýsköpun virka.

Í fyrra mættu um 6.500 manns og má búast við því að svipaður fjöldi hafi látið sjá sig að þessu sinni, enda var stöðugur straumur fólks frá klukkan 12:00 til 17:00 á laugardeginum þegar Vísindavaka var haldin.
Fjölbreytt líf í mýri
Undirbúningsnefnd Mýralífs, sem samanstóð af starfsfólki frá Náttúrufræðistofnun, LBHÍ og Fuglavernd, hafði í nógu að snúast dagana fyrir stóra daginn. Á bás Mýralífs var hægt að skoða uppstoppaða fugla sem verkefnið leggur sérstaka áherslu á; jaðrakan, stelk og lóuþræl. Til boða stóð að fá sér tattú með sömu fuglum og nýttu sér það margir, sérstaklega yngri kynslóðin.
Einnig var til sýnis mosi af ýmsu tagi. Barnamosinn (Sphagnum) vakti mikla lukku en hann var notaður sem bleyjuefni hér áður fyrr þar sem rakadrægni hans er einstaklega mikil. Hægt var að skoða þurrkaðan mó sem notaður var til upphitunar fyrr á öldum og strá sem vaxa í mýri.
Hornsílin (Gasterosteus aculeatus) úr Vatnsmýrinni voru vinsæl enda höfum við öll sérstaka ánægju af því að skoða allt sem lifandi er. Eitt barnið sem hafði mikinn áhuga á sílunum spurði: „Heita þau hornsíli vegna þess að þau eru alltaf út’í horni?“ Þrátt fyrir frábæra ályktun þá draga þau nafn sitt af broddum sem eru á bakinu framan við bakuggann.

Mýralíf fékk marga góða gesti til að fræðast um verkefnið. Til dæmis kíkti Clara Ganslandt, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, við hjá okkur og spjallaði við Elisabeth Bernard, verkefnastjóra Mýralífs, og Ragnheiði I Þórarinsdóttur, rektor LBHÍ.
Við þökkum skipuleggjendum Vísindavöku fyrir einstaklega vel heppnaðan dag og hlökkum til að mæta á næsta ári.
Skoða má fleiri myndir frá vökunni hér að neðan:




