
Forsvarsmenn Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ), samstarfsaðila í Mýralífi, og loftslagssjóðs NABU hafa undirritað samstarfssamning um stuðning við endurheimt framræsts votlendis á Hvanneyri og í nágrenni þess. Ingo Ammermann framkvæmdastjóri NABU og Ragnheiður Þórarinsdóttir rektor LBHÍ undirrituðu samninginn í byrjun september síðastliðins.
NABU (Naturschutzbund Deutschland) eru stærstu umhverfisverndarsamtök Þýskalands með eina milljón skráða meðlimi. Þau voru stofnuð árið 1899 til að vinna að verndun vistkerfa, sjálfbærum landbúnaði og til að vekja athygli á mikilvægi náttúruverndar og líffræðilegs fjölbreytileika í samfélaginu. Samtökin eru einnig fuglaverndarsamtök Þýskalands og hluti af alþjóðlegu samtökunum BirdLife International.
Stuðningur við rannsóknir og mælingar
Með samningnum skuldbindur NABU sig til að leggja fram fjármagn til endurheimtar nokkurra framræstra votlendissvæða á láglendi við Hvanneyri. Auk þess munu votlendissérfræðingar NABU, sem teljast meðal fremstu sérfræðinga Evrópu á þessu sviði, veita stuðning við rannsóknir og mælingar innan verkefnis Myralífs á Íslandi.

Slíkur stuðningur tryggir faglega framkvæmd á endurheimtarstarfi og leggur grunninn að því að þróa forskrift að endurheimt votlendis til að fara eftir á Íslandi í framtíðinni. Sérþekking NABU á endurheimt votlendis, vöktun og LIFE-verkefnum víðs vegar um Evrópu er kærkomin viðbót við þá þekkingu sem þegar er til staðar hjá sérfræðingum okkar.
NABU hefur þegar lagt sitt af mörkum til starfs Mýralífs með því að veita dýrmæta innsýn og ráðleggingar fyrir vöktunarstarf okkar, auk þess að hafa tekið þátt í sumarskóla LBHÍ í landslagsarkitektúr, „Hönnun með vatni“, með því að fræða nemendur um endurheimt mýra í Evrópu.
Við þökkum loftslagssjóði NABU og Tilmann Disselhoff kærlega fyrir traustið og stuðninginn – og hlökkum til samstarfsins.

