Lómur liggur á hreiðri í Friðlandi í Flóa Mynd: Bára Huld Beck
Lómur liggur á hreiðri í Friðlandi í Flóa Mynd: Bára Huld Beck
Myndasamkeppni – „Líf í mýri“
30.06.2026

Mýralíf býður almenningi að taka þátt í myndasamkeppni til að vekja athygli á einstöku lífríki votlendis á Íslandi. Við leitum að fjölbreyttu efni af fuglum, plöntum og landslagi – og jafnvel dýrum og fólki í þessu mikilvæga og stórbrotna vistkerfi. Þemað í ár er: „Líf í mýri“

Flokkarnir eru þrír; ljósmyndir, myndbönd og hljóð.

Verðlaun verða veitt fyrir efsta sætið í hverjum flokki fyrir sig.

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt skaltu senda inn efni á netfangið [email protected] með upplýsingum um:

- Nafn

- Titil verks

- Staðsetningu

- Stutta lýsingu á mynd/myndbandi/hljóði

Frestur til að skila inn efni er til 30. september 2026.

Myndasamkeppni auglýsing.jpg

lógó

Meðfjármagnað af Evrópusambandinu. Skoðanir og álit sem hér koma fram eru þó eingöngu á ábyrgð höfundar/höfunda og endurspegla ekki endilega skoðanir Evrópusambandsins eða CINEA. Hvorki Evrópusambandið né styrkveitandi getur borið ábyrgð á þeim.

lógó: lífið