Starfsmaður Náttúruverndarstofnunar útskýrir hvernig votlendi virkar Mynd: Bára Huld Beck
Starfsmaður Náttúruverndarstofnunar útskýrir hvernig votlendi virkar Mynd: Bára Huld Beck
Stemning á Hvanneyrarhátíð 2026
10.08.2026

Margt var um manninn á Hvanneyrarhátíð sem haldin var um síðastliðna helgi. Mýralíf lét sig ekki vanta og stóðu starfsmenn verkefnisins vaktina í gamla íþróttahúsinu á Hvanneyri laugardaginn 8. ágúst.

Á bás Mýralífs var hægt að fræðast um verkefnið og var boðið upp á ýmiss konar afþreyingu fyrir unga sem aldna. Tilgangurinn var að kynna verkefnið og spjalla um mikilvægi endurheimtar votlendis og jákvæð áhrif þess.

Starfsmenn Náttúruverndarstofnunar, samstarfsaðila í verkefninu, voru með okkur og fræddu gesti m.a. um verndarstæðið Andakíl.

Ýmislegt í gangi

Dagskrá Hvanneyrarhátíðar var ekki af verri endanum þetta árið. Fergusonfélagið stóð fyrir viðburði þar sem gamlar vélar óku um á Hlaðinu, sýnt var hvernig heyskapur var hér áður fyrr og traktorafimi var allsráðandi við kirkjuhólinn, svo eitthvað sé nefnt. Matar- og handverksmarkaðurinn var á sínum stað í hlöðunni og hægt var að fá sér kaffi og með því í hátíðarstemningu.

Margt var um manninn á Hvanneyrarhátíð 2026 Mynd: Bára Huld Beck
Margt var um manninn á Hvanneyrarhátíð 2026 Mynd: Bára Huld Beck

„Fullkomið tækifæri fyrir okkur til að hitta íbúa á svæðinu“

Elisabeth Bernard, verkefnastjóri Mýralífs, segir að það hafi verið gríðarlega gaman að taka þátt í hátíðinni.

„Þetta var fullkomið tækifæri fyrir okkur til að hitta íbúa á svæðinu og ræða við þá um verkefnið. Það var líka frábær upplifun að halda kynninguna okkar í gamla íþróttahúsinu, einu elsta húsinu á Hvanneyri. Fólk sýndi mikinn áhuga og við erum ánægð með að hafa fengið þessi jákvæðu viðbrögð. Það sem var þó mest spennandi var að sjá börnin vilja taka svona mikinn þátt í fræðslunni okkar sem beindist að líffræðilegri fjölbreytni votlendis og endurheimt þess,“ segir hún.

Hægt er að skoða myndir frá Mýralífi á Hvanneyrarhátíð 2026 hér fyrir neðan.

Mýralíf á Hvanneyrarhátíð 2026 Mynd: Bára Huld Beck
Mýralíf á Hvanneyrarhátíð 2026 Mynd: Bára Huld Beck
Elisabeth Bernard, verkefnastjóri Mýralífs, kynnti verkefnið Mynd: Bára Huld Beck
Elisabeth Bernard, verkefnastjóri Mýralífs, kynnti verkefnið Mynd: Bára Huld Beck
Fróðleikur, spil og púls fyrir gesti og gangandi Mynd: Bára Huld Beck
Fróðleikur, spil og púls fyrir gesti og gangandi Mynd: Bára Huld Beck
Stöðugur straumur var af fólki að bás Mýralífs í íþróttahúsinu á Hvanneyri Mynd: Bára Huld Beck
Stöðugur straumur var af fólki að bás Mýralífs í íþróttahúsinu á Hvanneyri Mynd: Bára Huld Beck
Ýmislegt var á boðstólnum fyrir börn og unglinga, m.a. stækkunargler til að skoða plöntur og skordýr Mynd: Bára Huld Beck
Ýmislegt var á boðstólnum fyrir börn og unglinga, m.a. stækkunargler til að skoða plöntur og skordýr Mynd: Bára Huld Beck
Börnin púsluðu myndir af fuglum, álum og votlendi Mynd: Bára Huld Beck
Börnin púsluðu myndir af fuglum, álum og votlendi Mynd: Bára Huld Beck

lógó

Meðfjármagnað af Evrópusambandinu. Skoðanir og álit sem hér koma fram eru þó eingöngu á ábyrgð höfundar/höfunda og endurspegla ekki endilega skoðanir Evrópusambandsins eða CINEA. Hvorki Evrópusambandið né styrkveitandi getur borið ábyrgð á þeim.

lógó: lífið