Elisabeth Bernard í hópi góðs fólks á pallborðinu Using Irish & Icelandic Wetlands as Catalysts for Change. Mynd: Bára Huld Beck
Elisabeth Bernard í hópi góðs fólks á pallborðinu Using Irish & Icelandic Wetlands as Catalysts for Change. Mynd: Bára Huld Beck
Svipaðar áskoranir á Íslandi og Írlandi
20.10.2026

Verkefnastjóri Mýralífs, Elisabeth Bernard, var fulltrúi verkefnisins á Hringborði norðurslóða, þingi Arctic Circle, sem haldið var dagana 8.-11. október síðastliðna.

Elisabeth var meðal mætra gesta á pallborði sem bar yfirskriftina Using Irish & Icelandic Wetlands as Catalysts for Change eða Írsk og íslensk votlendi nýtt sem hvati til breytinga, á föstudagsmorgninum í Hörpu. Pallborðið var skipulagt af Network of Arctic Researcher in Ireland (NARI), Háskólanum í Galway á Írlandi, Háskólanum á Akureyri og Conservation of Arctic Flora & Fauna (CAFF). Aaron Golden, prófessor við Háskólann í Galway, var fundarstjóri.

Aaron Golden, prófessor við Háskólann í Galway á Írlandi, stjórnaði umræðunum með stakri prýði. Mynd: Bára Huld Beck
Aaron Golden, prófessor við Háskólann í Galway á Írlandi, stjórnaði umræðunum með stakri prýði. Mynd: Bára Huld Beck

Sérfræðingar frá Íslandi, Írlandi og víðar að á norðurslóðum ræddu hvernig vernd og endurheimt votlendis getur stuðlað að raunverulegum breytingum í þágu umhverfisins. Byggt var á reynslu af verkefnum sem styrkt eru af LIFE-sjóðnum og meðal annars var rætt hvernig gervihnattatækni, nýjar gagnreyndar aðferðir, samstarf yfir landamæri og miðlun reynslu og þekkingar geta styrkt vernd og endurheimt votlendis. Jafnframt var fjallað um hvernig reynsla frá Írlandi og Íslandi geti nýst við vernd og endurheimt votlendis annars staðar á norðurslóðum og komið að gagni fyrir náttúru, loftslag og samfélög.

Áhugaverðar umræður sköpuðust á pallborðinu á Arctic Circle. Mynd: Bára Huld Beck
Áhugaverðar umræður sköpuðust á pallborðinu á Arctic Circle. Mynd: Bára Huld Beck

Dýrmætt að skiptast á skoðunum

Elisabeth segir að Ísland og Írland hafi lengi staðið frammi fyrir svipuðum áskorunum við endurheimt og verndun votlendis vegna svipaðra hefða og opinberrar stefnu sem gerðu mó-töku og framræslu mögulega. „Írland á sér þó lengri sögu í endurheimt mýrlendis, einkum í gegnum LIFE-áætlunina, en nýlegt mat framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á Írlandi hefur leitt í ljós að LIFE-áætlunin hefur skilað bestum árangri við endurheimt mýrlendis.

Slíkt tækifæri til að hittast og skiptast á skoðunum um sameiginleg hugðarefni okkar var því afar gagnlegt og dýrmætt nú þegar íslensk stjórnvöld hafa metnaðarfulla stefnu um að stöðva framræslu votlendis og kolefnislosun. Við sjáum mörg tækifæri til að læra af reyndum sérfræðingum þeirra og vísindamönnum, heimsækja írsk endurheimtarverkefni á komandi árum og huga að frekara samstarfi, til dæmis um að auka möguleika á jarðarathugunum á Íslandi til að bæta vöktun votlendis.“

Hún bætir því við að hún sé afar þakklát Claire Buckley, sendiherra Írlands gagnvart Noregi og Íslandi, fyrir að greiða fyrir pallborðinu og skapa þannig nýjan vettvang fyrir umræður í framtíðinni, sem og skipuleggjendum fyrir að leiða saman svo áhugaverðan hóp þátttakenda og varpa fram svo umhugsunarverðum spurningum.

lógó

Meðfjármagnað af Evrópusambandinu. Skoðanir og álit sem hér koma fram eru þó eingöngu á ábyrgð höfundar/höfunda og endurspegla ekki endilega skoðanir Evrópusambandsins eða CINEA. Hvorki Evrópusambandið né styrkveitandi getur borið ábyrgð á þeim.

lógó: lífið