Friðland í Flóa, sumar 2026 Mynd: Nick Williams / RSPB
Friðland í Flóa, sumar 2026 Mynd: Nick Williams / RSPB
Aðferðafræði um endurheimt votlendis – Þekking sem nýtist til framtíðar
05.11.2026

Nú liggur fyrir fyrsta útgáfa af aðferðafræði um endurheimt votlendis sem unnin hefur verið innan Mýralífs. Ritstjórn var í höndum Iðunnar Hauksdóttur, sérfræðings í endurheimt votlendis hjá Landi og skógi.

Markmiðið er að leggja grunn að samræmdum vinnubrögðum við skipulagningu og framkvæmd endurheimtar framræsts votlendis á Íslandi og stuðla þannig að vandaðri og markvissri endurheimt mýrarvistkerfa.

Aðferðafræðin byggir annars vegar á áralangri reynslu og hagnýtri þekkingu Lands og skógar á íslenskum mýrum og hins vegar á alþjóðlegum stöðlum um vistheimt frá Society for Ecological Restoration (SER). Með því að tengja saman reynslu á Íslandi og alþjóðleg gæðaviðmið er lagður grunnur að heildstæðri nálgun sem tekur mið af sérstöðu íslenskra aðstæðna.

Frá fyrstu athugun til framkvæmda

Í skjalinu er farið yfir helstu þætti endurheimtarferlisins, allt frá fyrstu athugunum á svæðum og samtali við landeigendur til gagnasöfnunar, markmiðasetningar, tæknilegrar hönnunar og framkvæmda.

Meðal þess sem fjallað er um er hvernig meta eigi upphafsástand svæða, til að mynda með mælingum á grunnvatnsstöðu, dýpt jarðvegs og kortlagningu vistgerða. Einnig er fjallað um endurheimtaraðgerðirnar sjálfar, leyfisveitingar og mismunandi aðferðir við að stöðva framræslu, svo sem með fyllingu skurða og þverbandagerð.

Lögð er sérstök áhersla á að hvert endurheimtarverkefni taki mið af aðstæðum á viðkomandi svæði. Markmið endurheimtar þurfa að byggja á faglegu mati, þekkingu á vistkerfinu og samtali við landeigendur og aðra hagaðila. Þannig er leitast við að tryggja að aðgerðirnar skili sem bestum árangri fyrir lífríki, vatnsbúskap og loftslag.

Sameiginlegur faglegur grunnur

Aðferðafræðin er unnin innan vinnupakka 3 í Mýralífi og er mikilvægur þáttur í þróun samræmdra viðmiða fyrir endurheimt votlendis hér á landi. Hún er jafnframt fyrsta útgáfa skjals sem getur þróast áfram með aukinni reynslu, nýrri þekkingu og niðurstöðum úr endurheimtarverkefnum.

Með útgáfunni er stigið mikilvægt skref í átt að sameiginlegum faglegum grunni fyrir endurheimt votlendis á Íslandi. Markmiðið er að stuðla að því að endurheimtaraðgerðir byggi á vandaðri undirbúningsvinnu, skýrri markmiðasetningu og viðurkenndum aðferðum sem styðja við bata vistkerfa til lengri tíma.

Aðferðafræðin er á íslensku og má lesa HÉR. Skjalið verður aðgengileg á ensku síðar.

lógó

Meðfjármagnað af Evrópusambandinu. Skoðanir og álit sem hér koma fram eru þó eingöngu á ábyrgð höfundar/höfunda og endurspegla ekki endilega skoðanir Evrópusambandsins eða CINEA. Hvorki Evrópusambandið né styrkveitandi getur borið ábyrgð á þeim.

lógó: lífið