„Tilbúinn til flugs“. Myndin sýnir jaðrakan að hefja sig til flugs í mýri, rétt við Tungurif í Patreksfirði. Mynd: Vilhjálmur Svanberg Arngrímsson
„Tilbúinn til flugs“. Myndin sýnir jaðrakan að hefja sig til flugs í mýri, rétt við Tungurif í Patreksfirði. Mynd: Vilhjálmur Svanberg Arngrímsson
Vinningshafar í Myndasamkeppni Mýralífs 2026
19.11.2026

Vinningshafar í Myndasamkeppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arngrímsson og Hlynur Steinsson. Piia Tomingas hlaut verðlaun fyrir myndband ársins. Er þetta í fyrsta skipti sem keppnin er haldin en um er að ræða árlegan viðburð.

Þemað í ár var Líf í mýri og var áhugaljósmyndurum, sem og fagfólki, boðið að taka þátt í myndasamkeppni sem endurspeglaði einstakt lífríki votlendis á Íslandi sem gegnir lykilhlutverki í að varðveita líffræðilega fjölbreytni, binda kolefni og skapa búsvæði fyrir fjölmargar fugla- og dýrategundir. Mýralíf leitaði að myndum og myndböndum af fuglum, plöntum og landslagi – sem og dýrum og fólki í þessu mikilvæga og stórbrotna vistkerfi.

„Tilbúinn til flugs“

Vilhjálmur Svanberg Arngrímsson þótti eiga bestu myndina en titill hennar er „Tilbúinn til flugs“. Myndin sýnir jaðrakan að hefja sig til flugs í mýri, rétt við Tungurif í Patreksfirði. Viðfangsefnið á einstaklega vel við þar sem jaðrakan er einkennisfugl Mýralífs og votlendis á Íslandi.

„Tilbúinn til flugs“. Myndin sýnir jaðrakan að hefja sig til flugs í mýri, rétt við Tungurif í Patreksfirði. Mynd: Vilhjálmur Svanberg Arngrímsson
„Tilbúinn til flugs“. Myndin sýnir jaðrakan að hefja sig til flugs í mýri, rétt við Tungurif í Patreksfirði. Mynd: Vilhjálmur Svanberg Arngrímsson

Aukaverðlaun hlaut Hlynur Steinsson fyrir myndina „Fuglaþúfa“ sem tekin var við Fellsenda á Mosfellsheiði. Myndin þótti fanga einstaklega vel þá stemningu sem fylgir mýri og votlendi. Myndin er grípandi og dáleiðandi í senn.

„Fuglaþúfa“ – Tekin við Fellsenda á Mosfellsheiði. Mynd: Hlynur Steinsson
„Fuglaþúfa“ – Tekin við Fellsenda á Mosfellsheiði. Mynd: Hlynur Steinsson

Ekki allt sem sýnist í votlendi

Piia Tomingas hlaut einnig verðlaun fyrir myndband með titlinum „Tveir tjarnartígrar – starbyttur (Agrypnia picta)“ sem tekið var upp á Mýrum. Myndbandið er af starbyttum, rándýrum mýrartjarnarinnar, í leit að næstu máltíð. Það sýnir glögglega að ekki er allt sem sýnist í votlendi og að finna megi þar fjölbreytt líf. Hægt er að skoða það á YouTube-rás Mýralífs.

Þökkum við öllum þeim sem sendu inn myndir kærlega fyrir þátttökuna!

Hér fyrir neðan má sjá vinningshafana 2026:

Vilhjálmur Svanberg Arngrímsson, vinningshafi Myndasamkeppni Mýralífs 2026. Mynd: Elisabeth Bernard
Vilhjálmur Svanberg Arngrímsson, vinningshafi Myndasamkeppni Mýralífs 2026. Mynd: Elisabeth Bernard
Hlynur Steinsson fékk aukaverðlaun fyrir myndina „Fuglaþúfa“ sem tekin var við Fellsenda á Mosfellsheiði. Mynd: Bára Huld Beck
Hlynur Steinsson fékk aukaverðlaun fyrir myndina „Fuglaþúfa“ sem tekin var við Fellsenda á Mosfellsheiði. Mynd: Bára Huld Beck
Piia Tomingas hlaut einnig verðlaun fyrir myndband með titlinum „Tveir tjarnartígrar – starbyttur (Agrypnia picta)“ Mynd: Bára Huld Beck
Piia Tomingas hlaut einnig verðlaun fyrir myndband með titlinum „Tveir tjarnartígrar – starbyttur (Agrypnia picta)“ Mynd: Bára Huld Beck

lógó

Meðfjármagnað af Evrópusambandinu. Skoðanir og álit sem hér koma fram eru þó eingöngu á ábyrgð höfundar/höfunda og endurspegla ekki endilega skoðanir Evrópusambandsins eða CINEA. Hvorki Evrópusambandið né styrkveitandi getur borið ábyrgð á þeim.

lógó: lífið