
Bjóðum fuglum heim
Mýralíf (Peatland LIFEline) er umfangsmikið verkefni sem miðar að endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi.
Verkefnið

Verkefnið
Verkefnið er samstarf sjö stofnana og félagasamtaka: Landbúnaðarháskóla Íslands, Lands og skógar, Náttúrufræðistofnunar, Fuglaverndar, Hafrannsóknastofnunar, Náttúruverndarstofnunar og bresku fuglaverndarsamtakanna RSPB. Verkefnið er að mestu fjármagnað af LIFE-sjóðnum, sem er hluti af umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins. Það hófst formlega 1. september 2025 og stendur til loka febrúar 2031, eða í 66 mánuði.
Íslenskt votlendi er einstakt í Evrópu, meðal annars vegna samspils ungs berggrunns, eldvirkni, áfoks og eldgosasögu. Þéttleiki fuglalífs er mikill og nokkrar tegundir reiða sig að stórum hluta á þessi svæði. Verkefnið mun leggja grunn að betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða og helstu áskoranir við endurheimt þeirra, auk þess sem lögð er áhersla á samfélagslega þátttöku og miðlun þekkingar.
Markmið Mýralífs er að efla yfirsýn og þekkingu á íslensku láglendisvotlendi, vistfræði þess, líffræðilegri fjölbreytni og hlutverki í kolefnishringrásinni. Sérstök áhersla er lögð á vistgerðina starungsmýravist, sem hefur mjög hátt verndargildi, auk fuglategundanna jaðrakans, stelks og lóuþræls, sem eru mikilvægir vísar um heilbrigði votlendis. Einnig verður sjónum beint að evrópska álnum sem er í útrýmingarhættu.

Um Mýralíf
Mýralíf (Peatland LIFEline) er umfangsmikið verkefni sem miðar að endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Verkefnið er samstarf sjö stofnana og félagasamtaka: Landbúnaðarháskóla Íslands, Lands og skógar, Náttúrufræðistofnunar, Fuglaverndar, Náttúruverndarstofnunar, Hafrannsóknastofnunar og bresku fuglaverndarsamtakanna RSPB. Verkefnið er að mestu fjármagnað af LIFE-sjóðnum, sem er hluti af umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins. Verkefnið hófst formlega 1. september 2025 og stendur til loka febrúar 2031, eða í 66 mánuði.













